17.8.2007 | 15:11
Skemmtilegir samningar
Jessica Biel fækkar fötum í næstu mynd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2007 | 14:48
Hvaða veitingahús eru þetta ?
Hvernig væri nú að upplýsa mann um hvaða veitingahús þetta eru sem hafa lækkað verðið. Aldrei að vita nema maður borðaði frekar þar en hjá hinum sem hafa stungið vasklækkuninni í vasann.
Verðlækkun hjá 4% veitingahúsa frá því í mars | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2007 | 14:44
Villi væluskjóða
Hvað er kallinn að væla ? Heldur hann virkilega að ástandið skáni ef Ríkið fer ?
Ég vinn í miðbænum og get frætt hinn lítt tryllta Villa um að það er ekki bjór úr Austurstrætisríkinu sem rónarnir eru að sulla í sig á morgnana.
Enn fremur vinnur talsvert af non-rónum hér auk þess sem mikið af ferðamönnum er á strjáli. Ég hef grun um að erlendir ferðamenn, sem gista á hótelunum í miðbænum, endi á að fara í Ríkið.
Þeir fá eflaust fyrsta áfallið þegar þeir skoða verðlistann á minibarnum og svo annað og verra áfall þegar þeir panta sér rauðvín með matnum.
Þó ekki væri nema þeirra vegna þá finnst mér sjálfsagt að hafa Ríki í miðbænum og það að selja kaldan bjór er jú bara sjálfsögð þjónusta.
Ef Villi vill losna við að sjá róna ætti hann frekar að láta loka apótekunum ...
Vill vínbúðina burt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.8.2007 | 22:37
Handvafið hjá Mette ?
Ef ég væri taugaveiklaður Norsari þá hefði ég nú meiri áhyggjur af því hvað var í rettunni ...
Eitthvað notaði hún nú sterkara en tóbak hér á árum áður.
Mette-Marit krónprinsessa átalin fyrir reykingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.8.2007 | 00:11
Píslarvotturinn Magnús
Mikið rosalega finn ég til með Magnúsi.
Verst að Toyota framleiðir ekki þyrlur ...
Leysir eigin samgönguvandamál með þyrlu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.8.2007 | 09:45
Tími kominn til !
Það má segja að tími sé kominn á "karlréttindabaráttu". Í dag (á Íslandi amk) er staðan sú að fjöldi samtaka og stofnana reka virka kvennréttindabaráttu en huga lítið að réttindum karla. Má þar nefna Kvennréttindafélag Íslands, Vinstri græna, Stígamót og Jafnréttisstofu (sem ætti í raun að heita "Kvennréttindastofa" !).Í ofanálag eru svo á jaðrinum öfgasamtök ýmiss konar sem beinlínis stefna að því að draga úr réttindum karla (s.s. Femínistafélagið).
Hvernig væri nú að hinn "jafnréttissinnaði" félagsmálaráðherra tæki þessi hugmynd Norðamanna upp á sína arma og setti í gang íslenska "Karlanefnd" ?
Karlar ræði karlréttindamál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.8.2007 | 17:46
Vafasamt en fyrirsjáanlegt
Auðvitað skipar heilög Jóhanna pólitískt rétt í þessa stöðu. Varla hefði nokkur búist við öðru.
Hins vegar þykir mér mjög vafasamt að skipa einstakling með svo einhliða skoðanir á jafnréttismálum. Það er ljóst á Jafnréttisstofa á áfram að vera "Kvennréttindastofa" og virka þannig aðeins fyrir helming landsmanna.
Af hverju er ekki bara að fella grímuna og endurnefna þetta fyrirbæri Ð
Kristín Ástgeirsdóttir skipuð framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.7.2007 | 21:12
Ekkert álitamál
Þetta er algjört glapræði.
Þó svo að hinn sjálfskipaði sérfræðingur Eyjamanna í jarðgangnagerð, glæpamaðurinn á Höfðabóli, telji skýrslu verkfræðistofunnar vera rugl, þá er ekki þar með sagt að það eigi að ausa úr sjóðum ríkisins meiri peningum til þess eins að reikna út að 50-80 milljarða jarðgögn borgi sig aldrei fyrir 4000 manna byggð.
Til samanburðar má nefna að títtnefnd Sundagögn, sem þykja helst til dýr, eiga að kosta 16 milljarða. Íbúar Reykjavíkursvæðisins eru tæp 200 þúsund og skv framtíðarspám Vegagerðarinnar munu um að lágmarki 20 þús bílar aka umrædd göng á sólarhring.
Hversu margir ætli myndu aka Vestmanneyjagögn á sólarhring árið 2012 ? Kannski 500.
Það ætti ekki að vera flókið að skófla þessum pælingum út af borðinu með einföldu reikningsdæmi.
Hins vegar mætti frekar eyða peningum í að kanna með bætta hafnaraðstöðu fyrir Herjólf, það er miklu raunsærri kostur.
Álitamál hvort göng til Vestmannaeyja séu réttlætanleg" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 26.7.2007 kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.7.2007 | 19:01
Helgi og kertafleytingarnar
Lúkas kominn heim | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.7.2007 | 18:52
Fordómar framkvæmdastjóra Alþjóðahússins
Það er nefnilega það. Skv. framkvæmdastjóra Alþjóðahússins er ljótt og beinlínis hættulegt að gefa upp hverrar þjóðar veiðiþjófarnir eru en það er allt í lagi að kalla veiðmenn fyllibyttur.
Þetta er ákaflega sérstök túlkun sem ég sé ekki betur en feli í sér bullandi fordóma um stangveiðifólk. En það er víst í lagi þar sem það er ekki til neitt opinbert "Stangveiðihús" með fólk á launum til þess að lobbýa fyrir þennan "minnihlutahóp".
Eins gott að veiðiþjófarnir voru ekki pólskar konur í ofanálag ...
Framkvæmdastjóri Alþjóðahúss svarar bréfi formanns SVFR | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)