Loksins !

Það þurfti mann eins og Villtatryllta Villa til að bjarga okkur úr klóm ískaldrar ómenningarinnar hér í miðborginni. 

Mann sem af visku sinni hugsar upp raunhæfar lausnir - og framkvæmir.

Mann sem þorir þegar aðrir drekka kaldan bjór ...


mbl.is Kælirinn fjarlægður úr vínbúðinni í Austurstræti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rugl

Hvers konar blaðamennska er þetta ?

Hvað kemur manni við þótt einhver kona hafi misreiknað sig í heimilisbókhaldinu ?

Það er ekki eins og þetta sé í fyrsta skipti sem krakkar komast ekki beint inn í skólaskjól (eða frístundaheimili).


mbl.is Stórskuldug vegna skorts á plássi á frístundaheimili
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Misrétti í jafnréttisráðinu

Getur einhver útskýrt fyrir mér hvers vegna það er í lagi að mismuna kynjunum í jafnréttisráðum en ekki t.d. í stjórnum fyrirtækja ?

Er þetta eitthvað tvöfalt jafnréttiskerfi sem hefur gleymst að segja mér frá ?

 Hvernig á maður að taka þessa "jafnréttisforkólfa" hátíðlega þegar ráðherra jafnréttismála ástundar kynjamisrétti með svo augljósum hætti ?

Jafnrétti - ekki bara fyrir konur !!


mbl.is Nýtt jafnréttisráð skipað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilja þeir ekki líka einkaleyfi á Árna ?

Hvaða rugl er þetta ?  Þeir mega eiga þetta húkkaraball enda fremur sérstætt orð.

Ég botna nú ekki í því hvernig þeim dettur í hug að fara fram á einkaleyfi á orðinu brekkusöngur.  Eins og það sé hvergi annars staðar sungið í brekkum !

Og að ætla að reyna að fá einkaleyfi á þjóðhátíð !  Það er nú bara rakinn dónaskapur ...


mbl.is Eyjamenn þeir einu sem mega halda Húkkaraball
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styrkir Byggðastofnunnar

Ekki kemur á óvart að "dregið hafi úr hagnaði" Byggðastofnunnar.

Byggðastofnun er, og hefur alltaf verið, styrkjabatterý sem oftast lánar til framkvæmda sem fyrirfram er ljóst að muni aldrei standa undir sér. 

Þetta er það sem kallað er "opinbert leyndarmál" ...

 


mbl.is Verulega dregur úr hagnaði Byggðastofnunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undarlegt

Hvers vegna fór hún ekki í vegabréfaeftirlitið fyrst hún "þekkir reglurnar" eins og hún sjálf segir ?

Og ef hún hefði ekki orðið fyrir meintum barsmíðum, væri þá allt í lagi að koma til landsins með ólöglegum hætti ?


mbl.is Kom ólöglega inn í landið með íslenskri fragtflugvél
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kínverska skoðanalögreglan

Af hverju minnir þetta mig á VG og netlöggu Steingríms J. ?

Krípí ...


mbl.is Jet Li gagnrýnir kvikmyndaeftirlitið í Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju kæri CD

Ég er samt hræddur um að þú verðir ekki mikið eldri úr þessu.  Þú hefur samt staðið þig nokkuð vel.

Held að afritunarvarnir muni fara endanlega með þig ... sorrý


mbl.is Geisladiskurinn 25 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hermaurinn sprækur

Þessir Kaupþingstónleikar komu nokkuð á óvart.  Fyrirfram bjóst maður nú ekki við miklu enda hljóðaði matseðillinn upp á poppfroðu með gömlum lummum.

Mugison kom gríðarlega sterkur inn.  Hef aldrei verið alveg að fíla gaurinn en þarna tók hann blúsrokk gírinn á þetta og gerði feikna vel.

Helgi Björns og félagar voru fínir en á bandvitlausum stað í dagskránni.

Af hverju var popp- og léttklassíkfroðunni ekki stillt upp fremst í dagskránni ?  Hrikalegt anticlimax að fá þenna Cortes þarna milli rokkatriða.

Todmobile komu á óvart, Eyþór var í banastuði !  Eitthvað hefur kallinn náð af sér kílóum á löngum göngutúrum í kjölfar ölvunarakstursins.  Hann var bara vel köttaður og megahress.

 Skrítið að hafa Bubba með kassagítarshow en kannski hefur Glitnir bara rukkað of mikið fyrir alvöru konsert Wink

Hélt reyndar líka að hann væri hættur þessum bjánalegu crowdpleaserstælum milli laga.

Stuðmenn voru ... 

Stuðmenn eru búnir að vera.


mbl.is Aldrei fleiri á Laugardalsvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stebbi og sprengjuvélarnar

Ætli tilvistarkreppti yfirherstöðvaandstæðingur Stefán Pálsson sé ekki ánægður með sína menn ?

Trúlega vill hann samt hafa þá enn nær en við ströndina ...


mbl.is Rússneskar vélar í íslenskri lofthelgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband