Færsluflokkur: Menning og listir

Brakandi snilld

Horfði á þáttinn "Söngvaskáld" áðan.  Þetta hefur verið frekar rislág sería en þó verið gaman að fylgjast með.

Það er skemmst frá því að segja að dúettinn Súkkat rúllaði þessu upp. 

Þetta eru snillingar !

Áreynslulaust flæði af snilldarmúsík, ekkert krútt og enginn rembingur. 

Toppuðu þetta alveg með því að fá þennan svertingja á sviðið beint úr spítalaskúringunum.  Hann rétt náði að fleygja yfir sig kokteiljakka og grípa með sér saxinn.  Algjörlega úr takti við þá en samt svo viðeigandi viðbót.

Það eina sem hugsanlega vantaði var Kúkur í lauginni ...


Leikhúsleiðindi

Eitt sinn var tíðin sú að fólk fór í leikhús til að hlægja og skemmta sér.  Settir voru upp gamanleikir og revíur þar sem samtímamál voru tekin fyrir og gerð skemmtilegri.

Í dag koma leikarar í ríkisstyrkt leikhús til þess að fá útrás fyrir illa bælda sýniþörf og önnur persónuleg vandamál.

Heyrði viðtal við einhverja málpípu Þjóðleikhússins áðan.  Hún var gjörsamlega að sleppa sér úr spenningi yfir dagskránni.  Hún lýsti fjálglega með agalega uppstemmdum lýsingarorðum þeim leikritum sem verða sýnd nú í haust.  Þetta byrjaði svo sem ágætlega, á barnaleikriti sem gæti verið gaman að sjá, en svo tók að halla verulega á ógæfuhliðina.

Áfram verði að sýna hálfvitaganginn Leg, Hallgrímur Helgason fær tækifæri til þess að riðlast enn frekar á íslenskunni í einhverjum 80's söngleik og svo eru auðvitað fastir liðir í þunglyndiskategóríunni, Kafka.  Hjálp.

Rúsínan í pylsuendanum er svo "gamanleikurinn" Ívanoff eftir Tsjekhov í leikstjórn áskriftarleikstjórans Balta.  Það á maður að innbyrða á annan í jólum.

Reyndar er þarna verk eftir Guðmund Steinsson, Sólarferð, sem gæti hugsanlega verið gaman að sjá.

Mér mér finnst að setja eigi í lög um Þjóðleikhúsið klásúlu um að eitt verk verði fast á dagskránni og sýnst á hverju ári, leikgerð af Nýju fötum keisarans.  Þjóðleikhússtjóri leiki ávalt keisarann.

Það gæti hugsanlega haft skemmtanagildi fyrir sauðsvartan almúgann.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband