21.11.2008 | 20:31
Sýndarmennska bitnar á ríkisstarfsmönnum
Sniðugt hjá Geira að fara fram á lækkun launa ríkisstarfsmanna. Eða þannig.
Viss um að ríkisforstjórar verða mjög glaðir með þessa launalækkun. Þeir eru búinir að vera í skásta falli hálfdrættingar á við kollega þeirra í einkageiranum undanfarin ár og eiga nú að taka á sig lækkun vegna mistaka þeirra og mistaka stjórnmálamanna.
Svo ætla alþingismenn að leyfa sér að halda áfram sérréttindum í lífeyrismálum. Hvers vegna eru þingmenn of góðir fyrir LSR (Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins) ? Hvaða (duldu) hæfileikar þingmanna gera það að verkum að þeir eigi skilið mörgum sinnum hærri lífeyrisréttindi en allir aðrir ?
Auðvitað á að fella þessi sérréttindi úr gildi ekki seinna en strax og senda allt stóðið í LSR.
Óska eftir launalækkun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sammála þér
Birgitta (IP-tala skráð) 21.11.2008 kl. 20:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.