9.8.2008 | 00:18
Færibandavinnsla hjá Clapton
Allt var þetta nú eftir bókinni hjá Clapton kallinum. Að vísu tók hann sig til og sleppti Laylu sem mér þótti mjög miður. Cocain var flott samt sem áður.
Skil nú ekki alveg hvað hann er að spá með því að láta hinn gítarleikarann spila svona mikið og syngja í ofanálag.
Ætli hann sé eitthvað farinn að slappast ?
Þessara annars ágætu tónleika á eftir að vera minnst sem biðraðatónleikanna, það er náttúrulega ekki alveg í lagi að þurfa að bíða í þrjú korter eftir því að komast á barinn !
Um 12.000 hlýða á Clapton | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.