8.10.2008 | 17:59
Hlægilegt rugl
Svo sem ágætt að fá svona gleðigjafa í miðju svartnættinu. Alltaf hægt að treyst á að maður geti hlegið að þessum arfavitlausu yfirlýsingum femínísta.
Jón Ásgeir og stuttpilsadeild VG og Samfó kenna Davíð um heimskreppuna en þetta er eiginlega ennþá geðveikislegri samsæriskenning.
Krefjast þess að menn verði dregnir til ábyrgðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2008 | 09:39
Jákvæðu hliðar kreppunnar
Nú verður væntanlega sjálfhætt við þetta ógurlega skipulagsslys sem var í uppsiglingu við Laugarveginn.
Kannski sjá menn nú að sér og koma Listaháskólanum fyrir þar sem hann á heima, innan um aðrar skólastofnanir í Vatnsmýrinni
Haldið verði áfram með Listaháskólann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.10.2008 | 16:01
Heimskulegar upphrópanir as usual
Anna Pála ætti kannski að líta í eigin barm áður en hún fer að kalla aðra gjöreyðingarvopn. Fór hún ekki fyrir hópnum sem terroriseraði borgarstjórn hér um árið ?
Hryðjuverkamaður (kona?) !!
Krefjast þess að Davíð víki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.10.2008 | 17:29
Ekki svo galið
Þetta er ekki svo vitlaus hugmynd.
Erlend hlutabréf eru ekki beint að gera góða hluti og þó svo veik króna sé hagstæð þá halda engar gjaldeyrisvarnir lengur.
Ef ríkið getur boðið sjóðunum ásættanleg kjör er þetta beggja hagur.
Eins gott að ekki er búið að festa féð í elliheimilablokkum eins og sumir snillingar hafa heimtað ...
Lífeyrissjóðir komi að lausn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.9.2008 | 20:57
Skipstjórinn barmar sér
Ég hélt að stærstu mistök hans hefðu verið að reka fólk af handahófi úr starfsmannasímaskránni hér um árið.
Og varðandi meint vanhæfi Davíðs : Eru þá sem sagt allir sem eru ekki á sömu skoðun og Baugsmaðurinn glaðhlakkalegi vanhæfir til þess að "taka ákvarðanir um málefni Glitnis" ?
Það var nú annars pínlega augljóst að fyrrum bankamálaráðherra framsóknar taldi sig greinilega alveg massahæfa til þess að taka ákvarðanir um málefni Glitnis. En ætli séu til einhverjir framsóknarmenn til þess að afhenda Glitni svona ef út í það er farið ? Jú Finnur auðvitað ...
Sameining Glitnis og Landsbanka ólíkleg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.9.2008 | 10:00
Óþekktarangi
Ekki eining í stjórn Stoða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.9.2008 | 09:58
Nonni og eineltið
Það er erfitt að vera Jón Ásgeir í dag. Samfylkingin hlýðir ekki, Seðlabankinn er vondur við hann og samsærisraddirnar í höfðinu bara ætla ekki að þagna.
Erkióvinurinn Davíð er búinn að setja Lehman Brothers á hausinn bara til þess að koma höggi á Nonna og pabba hans og ætlar nú að fullkomna verkið með því að veita Glitni neyðaraðstoð.
Þvílík grimmd ...
Telur Stoðir ekki fara í þrot | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
30.9.2008 | 09:53
Týpískur valdahroki
Jón Ásgeir á ekki því að venjast að undirsátar óhlýðnist fyrirmælum. Auðvitað kallar hann ráðherra stjórnmálaarmsins inn á teppið og messar yfir honum.
Spurning hversu gjöfult samband hans og fjölskyldu hans verður við Samfylkinguna í framhaldinu, ekki víst að hann fái prímadonnumeðferð hér eftir ...
Kallaði ráðherra og þingmenn á fund | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.8.2008 | 21:07
Hverjum er ekki sama ...
Endilega haltu áfram að reykja, þá losnum við fyrr við þig !
Árni Johnsen þeirra dana má þenja sig að vild, maðurinn er hvort eð er óþolandi
Kim Larsen fer í hart | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2008 | 21:58
Málefnapólitík Dags
Sennilega er þessi placebopilla Dags ein skásta lausnin sem hann hefur komið með hingað til. Takið pillu og þá verður allt í lagi ...
Aðrar aðgerðir Dags hingað til hafa haft mun alvarlegri aukaverkanir.
Rós og ráð gegn rugli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)