Á ekki séns í Angelinu

Hún getur reynt að glenna sig í glansblöðum en hún á ekki séns í Angelinu ...
mbl.is Aniston á Evuklæðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmæli !

Fólk getur vælt yfir pólitíkusum.

Krakkar geta hent eggjum og lamið á löggum.

En þetta kallar á harðar aðgerðir !!!


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bassinn

Rúnar hefur örugglega verið að teygja sig eftir bassanum þegar kallið kom, enda bassaleikari.

Gott samt að hann fékk á fara on-stage ...

Blessuð sé minning hans.


mbl.is Rúnar Júlíusson látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skyr sparisjóður ?

Hvað á þessi sparisjóðavellingur að heita ?
mbl.is Samruni sparisjóða í árslok
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott partý

Góð stemming í andyri Seðlabankans.

Hvenær verður partý við höfðustöðvar Baugs ?  Eða hjá Stoðum ?

Aldrei að vita nema maður mæti með öl og partýgrímu kreppunnar þangað ...


mbl.is Ráðist inn í Seðlabankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grímuklæddir menntaskólanemar

Hlustaði áðan á frétt um þessa uppákomu á Rúv.  Mér heyrðist viðmælendurnir vera krakkar í leit að æsingi.

Ætli þessir gaurar sem rætt var við séu að borga af húsnæðislánum ?  Ætli þeir séu að leggja fyrir í lífeyrissjóð ?

Hvar er fólkið með byrðarnar, fólkið sem ekki er búið að skuldsetja sig til andskotans á neyslufylleríi undanfarinna ára ?

Hvar er fólkið sem actually greiðir skatt ?  Það er fólkið sem hefur rétt á því að hafa skoðanir á ástandinu, unglingarnir geta beðið þar til þeir eru farnir að taka fullan þátt í samfélaginu.


mbl.is „Við viljum bara réttlæti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumingjaskapur í löggunni - grípa fyrr inn í

Hvað ætlar lögreglan að láta þennan ofbeldislýð vaða lengi uppi áður en eitthvað er gert ?

Er núorðið bara orðið eðlilegt að ráðast á lögregluna og lögreglustöðvar ?

Þessi undanlátssemi mun bara leiða til þess að ofbeldið eykst og einhverjir aðrir en löggan taka til varna.


mbl.is Fanganum sleppt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýndarmennska bitnar á ríkisstarfsmönnum

Sniðugt hjá Geira að fara fram á lækkun launa ríkisstarfsmanna.  Eða þannig.

Viss um að ríkisforstjórar verða mjög glaðir með þessa launalækkun.  Þeir eru búinir að vera í skásta falli hálfdrættingar á við kollega þeirra í einkageiranum undanfarin ár og eiga nú að taka á sig lækkun vegna mistaka þeirra og mistaka stjórnmálamanna.

Svo ætla alþingismenn að leyfa sér að halda áfram sérréttindum í lífeyrismálum.  Hvers vegna eru þingmenn of góðir fyrir LSR (Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins) ?  Hvaða (duldu) hæfileikar þingmanna gera það að verkum að þeir eigi skilið mörgum sinnum hærri lífeyrisréttindi en allir aðrir ?

Auðvitað á að fella þessi sérréttindi úr gildi ekki seinna en strax og senda allt stóðið í LSR. 


mbl.is Óska eftir launalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin er margir flokkar

Það ætlar að vera erfitt að vera í samstarfi við Samfylkinu.  Fylkingin er nefnilega fylking margra lítilla sérhagsmunaflokka.  Imba virðist ekki hafa mikla stjórn á flokkastóðinu og ekki einu sinni á eigin ráðherrum.

Ætlar hún að sýna einhverja stjórnvísi og losa sig við þessa villuráfandi ráðherra eða er skipulagið innanflokks bara eins og í dótatíma á leikskólanum ?


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ber nýtt við : þögn frá Óla

En sjálfsagt þarf Óli ekkert að tjá sig um þessa bók enda greinilega skrifuð að hans skapi.  Sagnfræðingurinn Guðjón stígur hér inn í hlutverk ævisagnaritarans og beintengir sig inn í sjálfsdýrkunarmaníu forsetans.  Í þetta skipti virðast traustar heimildir skipta minna máli en í fyrri ritum Guðjóns.  Sögusagnir látnar duga og "einnar-hliðar-frásagnir".

Guðjón minnkar í áliti sem sagnfræðingur við þessi skrif.


mbl.is Tjái mig ekki um einstök efnisatriði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband